flugfréttir

Airbus byrjar að smíða fyrstu A220 þotuna í Alabama

- Airbus A220 (CSeries) núna bæði framleidd í Kanada og Bandaríkjunum

6. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 09:03

Miðeining fyrir Airbus A220 færð inn í samsetningarsalinn í Mobile í Bandaríkjunum

Airbus hefur hafið framleiðslu á Airbus A220 þotunni í Mobile í Alabama en tæp tvö ár eru liðin frá því Airbus tilkynnti fyrst um áform sín um að smíða CSeries-þotuna í Bandaríkjunum.

Samsetning þotunnar er formlega hafin í Bandaríkjunum og fyrsta eintakið sem smíðað verður á bandarískri grund Airbus A220-300 þota fyrir Delta Air Lines sem afhent verður á þriðja ársfjórðungi næsta árs.

Sex ár eru liðin frá því fyrsta eintakið af CSeries-þotunni kom út úr skýli hjá Bombardier í verksmiðjunum í Mirabel í Kanada árið 2013 en í dag hafa verið smíðuð rúmlega 80 eintök af þotunni sem finna má í flota airBaltic, SWISS International Air Lines, Delta Air Lines og Korean Air.

Frá uppsetningu á nýju verksmiðjunni fyrir Airbus A220 í Mobile í Alabama í Bandaríkjunum

Airbus lýsir þessum tímamótum sem svo að með þessu endurspeglist sterk staða framleiðandans á heimsvísu og sé útrásin núna hafin vestanhafs með smíði á kanadískri farþegaþotu í Bandaríkjunum.

„Með starfseminni í Mobile, framleiðslunni í Asíu, Kanada og í Evrópu þá höfum við komið upp framleiðslu um allan heim og getum því þjónað viðskiptavinum okkar enn betur“, segir Jeffrey Knittel, framkvæmdarstjóri Airbus í Bandaríkjunum.

Starfsfólk Airbus í verksmiðjunum í Mobile hefur nýlega lokið við þjálfun í Mirabel í Kanada en framleiðsla á nýrri verksmiðju fyrir A220 í Mobile hófst fyrr á þessu ári. Framleiðsla á fyrstu eintökunum af A220 í Mobile mun þó fara fram til að byrja með í núverandi verksmiðjuálmu.

Fleiri myndir:









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga