flugfréttir

EasyJet gagnrýnt fyrir sæti með engu sætisbaki

7. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:33

Flugvélin var á leið frá London Luton til Genfar í Sviss þegar farþegi um borð gaf því gaum að einn farþegi sat í sæti með engu sætisbaki

Breska lágfargjaldafélagið easyJet hefur svarað fyrir þá gagnrýni sem félagið hefur fengið á sig eftir að ljósmynd var birt á samfélagsmiðlum í gær sem sýnir konu sitja í sæti sem hafði ekkert sætisbak.

Myndin var tekin um borð í Airbus A319 þotu félagsins skömmu fyrir brottför frá London Luton til Genf og má sjá hvar kona situr í sætaröð þar sem sætisbakið vantaði á heila sætaröð.

Myndin fór eins og eldur um sinu bæði á Twitter og Facebook en í yfirlýsingu frá easyJet kemur fram að konan hafi verið færð undir eins í annað sæti og hafi hún því ekki setið á þessum stað nema fyrst þegar hún kom um borð í vélina.

„Engin farþegi fékk að sitja í þessu sæti þar sem þau voru ekki nothæf á meðan ekki var búið að skipta um þau. Öryggi er ávalt í forgangi hjá okkur“, segir í yfirlýsingu frá félaginu.

Twitter-notandinn Matthew Harris tók myndina og setti á samfélagsmiðla þar sem hann „taggar“ bæði easyjet og Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) og segir að easyJet hafi náð að slá út Ryanair með baklausa sætinu.

EasyJet svaraði í ummælum við myndina þar sem félagið bað Harris um að fjarlægja hana á meðan félagið rannsakar málið en tekur fram að konan hafi verið færð í annað sæti um leið og allir farþegarnir voru komnir um borð.

Yfir 6.000 notendur dreifðu myndinni áfram á Twitter







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga