flugfréttir
Röng flapastilling talin orsök flugslyss í Connecticut
Flugvélin sem brotlenti bar skráninguna N1727V
Röng stilling á flöpum er talin vera orsök flugslyss sem átti sér stað í Connecticut í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum er kennsluflugvél af gerðinni Cessna C172 brotlenti skömmu eftir flugtak á grasflugvelli.
Um borð í vélinni var nemandi sem var komin með 15 flugtíma auk flugkennara en samkvæmt gögnum þá lenti vélin á grasbraut skömmu áður og er talið að flapar hafi ekki verið dregnir inn fyrir flugtakið.
Vélin náði aðeins
að klifra upp í 150 feta hæð yfir jörðu þar til hún brotlenti í um 300 metra fjarlægð frá brautarenda.
Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum (NTSB) þá voru engin ummerki um neina bilun í vélinni en í ljós
kom að gleymst hafði að taka up flapa eftir lendinguna og fór vélin því í loftið með 40° flapa en undir engum kringumstæðum er mælst til þess
að fara í flugtak á Cessna 172 með meira en 10 gráðu flapa.
Talið er að 40 gráðu flapastilling í flugtaki hafi valdið því að vélin náði ekki að klifra hærra og hafi flughraði hennar lækkað á sama tíma
og gerð var tilraun til þess að ná meiri hæð í flugtaki þar til vélin fór í ofris og brotlenti.
Ekki er vitað hvort að nemandinn eða flugkennarinn hafi verið við stjórn vélarinnar í flugtakinu en flugkennarinn lést í slysinu og nemandinn
hlaut mjög alvarlega áverka.
Slysið átti sér stað nálægt New Milford-Candlelight Farm flugvellinum, skammt norðvestur af borginni New Haven í Connecticut, þann 11. ágúst árið
2017.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.