flugfréttir

Flugmenn Ryanair boða til verkfallsaðgerða

8. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:29

Fyrstu verkfallsaðgerðirnar hefjast þann 22. ágúst næstkomandi

Þeir farþegar, sem eiga bókað flug með Ryanair, eiga von á töluverðri röskun á flugi í enda ágúst og byrjun september eftir að flugmenn félagsins kusu um verkfallsaðgerðir sem hefjast á næstunni.

Í yfirlýsingu frá félagi breskra atvinnuflugmanna (BALPA) segir að áratugalöng ákvörðun Ryanair um að hunsa rétt flugmanna á að vera í verkalýðsfélögum leiði enn og aftur til verkfallsaðgerða.

Framundan er 48 tíma verkfall sem á að skella á þann 22. ágúst næstkomandi og 72 tíma verkfallsaðgerðir eru fyrirhugaðar þann 2. september.

„Enginn flugmaður vill eyðileggja ferðaáætlun farþega en eins og staðan er núna þá eiga þeir engan annan möguleika“, segir Brian Strutton, yfirmaður BALPA.

Ryanair hefur ekki komið með neitt tilboð fyrir flugmenn eða svarað fyrir fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir en BALPA segir að margir flugmenn hjá Ryanair hafa kvartað yfir launamálum, málum varðandi greiðslum í lífeyrissjóð auk mála er snerta fríðindi og starfsumhverfi þeirra.

Um 72% tóku þátt í að kjósa um verkfallið og af þeim voru um 80 prósent flugmanna sem kusu með verkfallsaðgerðum en Ryanair segir að færri en 50% af þeim eru meðlimir í BALPA og aðeins 57% hafi kosið með verkfalli.

Ryanair hefur þegar varað starfsmenn sína við viðamiklum niðurskurði í haust og segir félagið að Ryanair hafi 900 fleiri flugmenn og áhafnarmeðlimi en félagið þarf á að halda.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga