flugfréttir

Norwegian hættir öllu flugi yfir Atlantshafið frá Írlandi

- Hætta að fljúga frá Dublin, Shannon og Cork til Bandaríkjanna og Kanada

13. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 16:16

Norwegian byrjaði að fljúga til Norður-Ameríku frá Írlandi árið 2017

Norwegian hefur ákveðið að hætta öllu áætlunarflugi yfir Atlantshafið á milli Írlands og Norður-Ameríku.

Um er að ræða allt flug milli Írlands og Bandaríkjanna og Kanada en félagið sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis í dag og kemur fram að flugið yfir Atlantshafið frá Írlandi sé ekki arðbært fyrir félagið.

Norwegian mun hætta öllu flugi til Ameríku frá Írlandi um miðjan september og mun þetta hafa áhrif á nokkur þúsund farþega sem hafa bókað flug með félaginu en félagið hefur flogið til Norður-Ameríku frá Dublin, Cork og Shannon sl. tvö ár.

Kyrrsettar Boeing 737 MAX þotur Norwegian

Þær flugferðir sem félagið mun hætta að fljúga eru eftirfarandi:

Dublin - Hamilton, Ontario (Kanada)
Dublin - Newburgh, NY (Bandaríkin)
Dublin - Providence, Rhode Island (Bandaríkin)

Shannon - Newburgh, NY (Bandaríkin)
Shannon - Providence, Rhode Island (Bandaríkin)

Cork - Providence, Rhode Island (Bandaríkin)

Norwegian hefur þurft að taka flugvélar á leigu í sumar til þess að fljúga þessar flugleiðir þar sem félagið hefur ekki geta notað Boeing 737 MAX þoturnar þar sem þær eru kyrrsettar en leigan hefur verið mun dýrari samanborið við kostnaðinn að fljúga sínum eigin flugvélum.

Leiguflugvélar í stað Boeing 737 MAX of dýrar í rekstri fyrir flugið

„Vegna kyrrsetningarinnar og óvissu um hvenær Boeing 737 MAX getur flogið á ný þá höfum við neyðst til þess að taka þessa erfiðu ákvörðun um að hætta með sex flugleiðir í leiðarkerfinu frá Dublin, Shannon og Cork til Bandaríkjanna og Kanada frá og með 15. september í haust“, segir í tilkynningu frá Norwegian.

Félagið mun endurgreiða þeim farþegum sem ætla ekki að fljúga frá Írlandi til Ameríku vegna þessa en Norwegian mun fljúga áfram frá Dublin til Kaupmannahafnar, Osló og til Stokkhólms.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga