flugfréttir
Tvær þotur frá Qantas of nálægt hvor annarri í Sydney
Airbus A330 breiðþota Qantas í flugtaki á flugvellinum í Sydney
Atvik átti sér stað á flugvellinum í Sydney á dögunum er tvær farþegaþotur frá Qantas fóru of nálægt hvor annarri.
Atvikið átti sér stað með þeim hætti að flugumferðarstjóri hafði gefið breiðþotu af gerðinni Airbus A330
leyfi til þess að taka sér brautarstöðu fyrir flugtak til Melbourne en á sama tíma var Boeing 737-800 þota
á lokastefnu á leið til lendingar á sömu braut eftir flug frá Brisbane.
Airbus A330 þotan fékk leyfi til þess að fara í tafarlaust flugtak en fljótllega kom í ljós
að aðskilnaðurinn frá flugvélinni sem var að lenda var of lítill og bað flugumferðarstjóri flugmenn þeirrar
vélar að hætta við lendingu og fara í fráhvarfsflug úr lítilli hæð og beygja svo fljótlega frá til austurs.
Stefnan til austurs í fráhvarfsfluginu skarst hinsvegar við staðlaðan brottflugsferil Airbus A330 þotunnar sem
og kom upp TCAS árekstrarviðvörun um borð í stjórnklefa þeirrar vélar sem náði að klifra fyrir ofan Boeing 737-800
þotuna.
Boeing 737 þotan lenti skömmu síðar eftir 10 mínútur á meðan Airbus A330 þotan hélt flugi sínu áfram
til Melbourne.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Ástralíu flokkar atvikið sem alvarlegt atvik og hefur rannsókn hafist á því en ekki
kemur fram hversu mikill aðskilnaður var á milli flugvélanna tveggja.
Fram kemur að flugturninn á Kingsford Smith flugvellinum í Sydney hefur átt við manneklu að stríða að undanförnu
og sé búið að vera mikið álag á flugumferðarstjórum sem margir hverjir hafa kvartað yfir strangri yfirvinnu og
hafa komið upp tilvik þar sem sumir hafa hringt sig inn veika til þess að fá meiri hvíld.
Atvikið átti sér stað þann 5. ágúst sl. og kemur fram að flugmennirnir á Airbus A330 þotunni hafi verið
með hina þotuna í augsýn allan tímann í brottfluginu og var því ekki nein hætta á ferðum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.