flugfréttir
Þróun og smíði á Boeing 777-8 frestað
Svo gæti verið að Boeing 777-8 komi ekki á markað fyrr en árið 2023
Boeing hefur tilkynnt að flugvélaframleiðandinn ætli að bíða með þróun og framleiðslu á Boeing 777-8 þotunni.
Boeing 777-8 er minni og langdrægari útgáfan af Boeing 777X en Boeing hefur nú þegar framleitt
tilraunarútgáfuna af fyrstu 777-9 þotunni auk þess sem eitt sölueintak af 777-9 fyrir Emirates hefur verið framleitt.
Boeing 777X er arftaki Boeing 777 og er talið að þessi þota muni brjóta blað í sögu breiðþotna er hún kemur
á markaðinn en prófanir eru þegar hafnar með stærri tegundina, Boeing 777-9.
Boeing segir að ástæða þess að frestað hefur verið þróun og framleiðlsu á Boeing 777-8 sé til þess að
fyrirbyggja að upp komi hnökrar við smíðina en Boeing hefur haft nóg á sinni könnu varðandi vandamálið
með Boeing 737 MAX.
Ekki kemur fram hversu lengi Boeing 777-8 verkefnið verður sett á hilluna en framleiðandinn hefur fengið
pantanir í 53 eintök frá Emirates, Qatar Airways og Etihad Airways í minni þotuna.
Boeing 777-8 hefur verið sú tillaga sem Boeing hefur boðið Qantas upp á en ástralska flugfélagið hefur
verið að leita eftir þotu sem getur flogið beint flug frá Sydney til London.
Til stóð að Boeing 777-9 myndi fljúga jómfrúarflugið á þessu ári en nokkrar vikur eru síðan að tilkynnt
var að því yrði frestað fram til ársins 2020.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.