flugfréttir
Vilja að hæstiréttur komi í veg fyrir boðað verkfall flugmanna
- Telja að aðgerðir séu brot á sáttmála sem gerður var við sáttasemjara í fyrra
Flugmenn Ryanair, sem hafa aðsetur í Dublin, hafa boðað til verkfallsaðgerða frá og með næsta fimmtudegi
Ryanair hefur biðlað til hæstaréttar Írlands um að grípa í taumana og koma í veg fyrir fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir meðal írskra flugmanna sem stefna á að leggja niður störf sín í næstu viku.
Ryanair fer fram á að fá dómsúrskurð til þess að banna verkalýðsfélaginu
Forsa að skipuleggja 48 klukkustunda verkfallsaðgerðir sem eiga að hefjast
á miðnætti þann 22. ágúst næstkomandi.
Alls eru um 180 flugmenn hjá Ryanair sem ætla að taka þátt í verkfallsaðgerðunum
og mótmæla launamálum og aðstæðum hjá félaginu en þeir fljúga flestir
frá Dublin þar sem félagið hefur bækistöðvar.
Ryanair segir að verkfallsaðgerðirnar séu brot á samningi sem
flugmenn gerðu í fyrra við sáttasemjara er sáttmáli náðist um starfsumhverfi
þeirra og kjör og telur félagið það vera lögbrot að rjúfa þann samning.
Þá segir Ryanair að flugmenn félagsins hafi ekki lýst formlega yfir neinni
óánægju þeirra og hafi enginn fyrirvari borist til félagsins vegna
verkfallsaðgerðanna.
Í yfirlýsingu hjá félaginu kemur fram að fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir
munu skaða orðstýr félagsins og sérstaklega er varðar stundvísi
og áreiðanleika.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.