flugfréttir
Vélmenni flaug mannlausri Cessnu í 2 klukkustundir
- Robopilot er samstarfsverkefni bandaríska flughersins og Dzyne Technologies
Vélmennið flaug flugvélinni í um tvær klukkustundir
Lítil Cessna-einkaflugvél tók á loft á dögunum í Bandaríkjunum mannlaus með engan um borð en flugvélinni var flogið af vélmenni sem flaug vélinni í tvær klukkustundir.
Vélmennið, sem kallast Robopilot, er samstarfsverkefni rannsóknardeildar bandaríska
flughersins (AFRL) og fyrirtækisins Dzyne Technologies en vélmenninu var komið
fyrir um borð í flugvél af gerðinni Cessna 206 Skywagon og fór vélin í loftið
frá flugvellinum í Dugway í Utah þann 9. ágúst sl.
Robopilot-vélmennið hefur arma sem stjórna stýrinu, ýta á fótstigið til að hreyfa hliðarstýri og
ýta á bremsur, stjórna eldsneytisinngjöfunni og mixtúrunni, breyta flapastillingum og
lesa af mælum - allt á sömu vegi og flugmaður myndi gera.
Vélmennið flaug vélinni úr hægra sætinu
Fjöldi skynjara fylgjast með afstöðu vélarinnar og niðurstöður frá þeim gefa boð til armanna
sem framkvæmda viðeigandi aðgerðir til að stýra vélinni.
„Engar varanlegar breytingar voru gerðar við flugvélina til þess að koma vélmenninu
fyrir. Með þessu getur flugvél farið í ómannaða sendiför á flugvél eins og Cessna eða Piper“, segir
Alok Das, vísindamaður hjá rannsóknardeild bandaríska flughersins.
AFRL og Dzyne Technologies hafa unnið að hönnun og þróun Robopilot sl. ár en
prófanir voru gerðar á undan í RedBird flughermi með Flight Simulator X en sambærileg
vélmenni hafa áður flogið flugvélum af gerðinni Diamond DA42, Cessna 208 Caravan
auk þess sem vélmenni hefur flogið DHC-2 Beaver.
Hér að neðan má sjá myndband sem tekið var er Robopilot flaug Cessna Skywagon
flugvélinni í Utah á dögunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.