flugfréttir

Stærsta slökkviliðsflugvél heims berst við eldana í Amazon

- Ríkisstjórn Bólivíu pantar slökkviaðstoð frá Global SuperTanker Services

27. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 22:03

Global SuperTanker kemur með átta vatnstönkum sem til samans geta borið 90 þúsund lítra af vatni

Stærsta slökkviliðsflugvél heims, Global SuperTanker, berst nú við skógareldana sem geisa í Amazon-frumskóginum en þotan er Boeing 747 júmbó-þota sem var breytt í sérstaka flugvél til að sinna slökkvistörfum árið 2015.

Global SuperTanker flugvélin hefur lent og tekið á loft um fimm sinnum á hverjum degi frá því í síðustu viku á Viru Viru International flugvellinum í borginni Santa Cruz í Bólivíu sem hefur flugbraut sem er 3,5 kílómetra löng.

Flugvélin er í eigu fyrirtækisins Global SuperTanker Services og sinnir hún útkalli ef þess er óskað til að berjast við skógarelda og einnig til að eyða olíubrák á sjó en það var ríkisstjórn Bólivíu sem óskaði eftir aðstoð og fór Global SuperTanker fram á fyrirframgreiðslu upp á 98 milljónir króna áður en þotan var send til Suður-Ameríku.

Global SuperTanker flugvélin hefur flogið nokkrum sinnum á dag til og frá Santa Cruz í Bólivíu til að berjast við skógareldana í Amazon-frumskóginum

Slökkviliðsvélin, sem ber skráninguna N492EV, var upphaflega afhent til Japan Airlines sem Boeing 747-400 farþegaþota árið 1991 en vélin var afhent til Evergreen International Airlines árið 2012. 

Global SuperTanker kemur með átta vatnstönkum sem til samans geta borið 90 þúsund lítra af vatni sem samsvarar um 20.000 gallonum og sprautast vökvinn út um nokkrar háþrýstitúður sem staðsettar eru undir búknum. Bæði er hægt að tæma alla tankana á mjög skömmum tíma eða stillt á hægan sprautunarhraða sem myndar þéttan úða.

Global SuperTanker flugvélin yfir Amazon-svæðinu

Ekkert lát virðist á eldunum á Amazon-svæðinu sem loga á mörgum stöðum og hefur verið lýst yfir neyðarástandi á mörgum svæðum í Suður-Ameríku vegna eldanna og þá sérstaklega í Brasilíu.

Þetta er í fimmta sinn sem Global SuperTanker flugvélin fer í alþjóðlegan leiðangur til að berjast við elda en þotan slökkti elda í Ísreal árið 2010 á vegum Evergreen International og þá hefur hún slökkt elda í Mexíkó og í Chile.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga