flugfréttir

111 flugmenn færðir í 50 prósent starf í vetur

- 30 flugstjórar færðir til í stöðu flugmanns tímabundið

30. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:54

„Dyrhólaey“, fyrsta Boeing 737 MAX þotan sem afhent var til Icelandair

Alls verða 111 flugmenn hjá Icelandair færðir niður í 50 prósent starfshlutfall í vetur auk þess sem 30 flugstjórar verða færðir til tímabundið í stöðu flugmanns yfir hávetrartímann frá 1. desember til 1. apríl 2020.

Í tilkynningu frá Icelandair segir að þetta hafi verið ákveðið til þess að lágmarka þau áhrif sem kyrrsetning Boeing 737 MAX þotnanna hefur á rekstur félagsins auk þess sem ekki er vitað hver endanleg áhrif kyrrsetningin mun hafa á fjárhag félagsins.

Ekki er vitað hvenær Boeing 737 MAX þoturnar geta hafið sig til lofts á ný en Icelandair gerir ekki ráð fyrir þeim í rekstri á þessu ári en vestanhafs er vonast til þess að vélarnar fái vottun að nýju fyrir lok ársins frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA).

„Eins og áður hef­ur komið fram ger­ir Icelanda­ir ekki ráð fyr­ir því að taka Boeing 737-MAX flug­vél­ar á ný inn í rekst­ur fé­lags­ins fyrr en í byrj­un næsta árs. Upp­haf­lega gerði fé­lagið ráð fyr­ir níu slík­um vél­um í flota sín­um á þessu ári“, segir í tilkynningu frá Icelandair.

Þá kemur fram að kyrr­setn­ing­in veld­ur jafn­framt óvissu varðandi af­hend­ingu fimm nýrra MAX véla sem áætlaðar voru til af­hend­ing­ar snemma á næsta ári og er um að ræða for­dæma­lausa stöðu sem hef­ur um­tals­verð nei­kvæð áhrif á rekst­ur fé­lags­ins sem og flugáætl­un í vet­ur.

Þrjár Boeing 737 MAX þotur Icelandair sem bíða þess að verða afhentar á athafnasvæði Boeing í Seattle ásamt fleiri Boeing 737 MAX þotum

Icelanda­ir og Fé­lag ís­lenskra at­vinnuflug­manna (FÍA) hafa á þessu ári unnið sam­an að því að skapa tæki­færi til þess að tak­ast á við sveifl­ur í áhafnaþörf fé­lags­ins með öðrum leiðum en áður hef­ur tíðkast og nú þegar hafa störf tæp­lega 100 flug­manna tekið breyt­ing­um yfir vet­ur­inn.

Fyrstu áhrif kyrrsetningarinnar fór að gæta í maí í vor er félagið sagði upp 45 flugmönnum sem flugu Boeing 737 MAX auk fleiri flugmanna sem höfðu hafið þjálfun á vélarnar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga