flugfréttir
Gera samkomulag um kaup á 100 þotum frá Mitsubishi Aircraft
- Mesa Airlines ætlar að panta eitt hundrað M100 (MRJ) þotur
Fyrstu þoturnar verða afhentar til Mesa Airlines árið 2024
Bandaríska flugfélagið Mesa Airlines hefur undirritað samkomulag við Mitsubishi Aircraft um kaup á allt að 100 þotum frá SpaceJet af gerðinni M100 sem einnig eru þekktar undir nafninu Mitsubishi Regional Jet (MRJ).
Mesa Airlines annast flugrekstur fyrir American Eagle og United Express sem fljúga stuttar flugleiðir milli minni
borga vestanhafs.
Tilkynnt var um samkomulagið á Regional Airlines Associations hátíðinni sem fer fram árlega en að þessu
sinni fór ráðstefnan farm í Nashville í Tennessee.
Fyrirhugaður samningur tekur mið af því að Mesa Airlines leggi inn staðfesta pöntun í 50 þotur auk
þess sem félagið ætlar að tryggja sér kauprétt á fimmtíu þotum til viðbótar og eiga afhendingar
að hefjast árið 2024.
Mitsubishi Aircraft kynnti nýtt nafn fyrir MRJ þoturnar á flugsýningunni í París í júní og heita þoturnar
því núna SpaceJet.
Þá var ákveðið að hætta við þróun á hinni 70 sæta MRJ70 þotu og einblína eingöngu á útgáfuna sem tekur yfir 70 farþega sem er SpaceJet M100.
Stærri útgáfan, sem mun bera heitið M90, er ætlað að taka 88 farþega.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.