flugfréttir

Flugvél snúið við vegna rifrildis um farsímanotkun fyrir flugtak

- Lögregla fjarlægði báða farþegana frá borði við komuna til Sydney

9. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 08:42

De Havilland Dash 8 Q400 flugvél frá QantasLink

Farþegaflugvél af gerðinni De Havilland Dash 8 Q400 frá QantasLink, sem var í innanlandsflugi í morgun í Ástralíu, þurfti að snúa við aftur til Sydney vegna deilna sem komu upp milli tveggja farþega um farsímanotkun hjá öðrum þeirra.

Flugvélin fór í loftið frá flugvellinum í Sydney kl. 4:52 í nótt að íslenskum tíma áleiðis til höfuðborgarinnar Canberra en í flugtakinu var einn farþegi sem var að senda skilaboð úr farsíma sínum á meðan vélin var að aka í átt að flugbrautinni rétt fyrir flugtak en það féll ekki vel í geðið hjá einum farþega sem sat við hlið hans.

Sá farþegi fór að skipta sér af skilaboðasendingum hjá sessunautnum og sagði honum að farsímanotkunin ógnaði flugöryggi og skömmu síðar spruttu upp miklar deilur milli þeirra.

Farþegunum tveimur varð það heitt í hamsi í deilunum að flugfreyjur tilkynntu flugmönnunum um ástandið aftur í vélinni og ákvað flugstjórinn að snúa við til Sydney skömmu eftir flugtak.

Lögregla beið farþeganna við komuna og voru báðir farþegarnir fluttir úr vélinni og var farið með þá niður á lögreglustöð þar sem þeir voru yfirheyrðir.

Tveggja tíma seinkun varð á fluginu en flugvélin gat ekki farið strax aftur í loftið eftir að búið var að fjarlægja farþegana vegna hvassviðris á flugvellinum í Sydney.

Flugvélar QantasLink koma ekki með þráðlausu interneti líkt og þær Boeing 737 þotur sem Qantas notar í innanlandsfluginu og er ætlast til þess að farþegar setji farsíma sína á flugstillingu áður en vélinni er ýtt frá brottfararhliði.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga