flugfréttir
SAS mun kynna nýtt útlit á næstu dögum
- Kveðja núverandi liti sem voru innleiddir árið 1998
Mögulegt er að þetta sé nýja útlitið sem SAS mun kynna þann 19. september en það hefur þó ekki verið staðfest
Scandinavian Airlines (SAS) hefur tilkynnt að félagið muni svipta hulunni af nýju útliti við hátíðlega athöfn þann 19. september sem eru þeir litir sem fyrsta Airbus A350 þotu félagsins mun skarta.
SAS hefur boðið fjölmiðlum víðsvegar um heim að vera viðstaddir athöfnina sem fram
fer á flugvellinum í Kaupmannahöfn en núverandi útlit á flugvélum SAS hefur verið við lýð
í 21 ár eða frá árinu 1998.
SAS hefur birt á Twitter-síðu sinni örstutt „teaser“-myndband þar sjá má nokkur brot úr púsli af nýju A350 þotunni sem skiptast á að birtast í nokkur sekúndubrot en ekki er ekki hægt að greina
hvernig nýja útlitið á því myndbandi.
Á vefsíðunni Infinity Flight birtist hinsvegar í gærkvöldi tölvugerð mynd af A350 sem talið er vera það útlit
sem SAS er að fara að kynna eftir 12 daga.
SAS á von á því að fá alls átta Airbus A350-900 þotur afhentar á næstunni en þær munu leysa
af hólmi hina fjögurra hreyfla Airbus A340 breiðþotur.
Tölvugerð mynd frá Airbus af A350-900 í núverandi litum SAS sem var tekið í notkun árið 1998
Svona litu flugvélar SAS út á níunda áratugnum
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.