flugfréttir

„Væri rekið með tapi þótt við myndum fljúga í sjálfboðavinnu“

- Flugmenn Kenya Airways gagnrýna félagið fyrir að sakast við þá

10. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 09:34

Flugvélar Kenya Airways á flugvellinum í Nairobi í Kenýa

Flugmenn hjá Kenya Airways hafa gagnrýnt stjórn félagsins fyrir að saka flugmenn um það hvernig er komið fyrir félaginu en stjórn félagsins telu flugmenn vera orsök þess að félagið sé búið að vera rekið með tapi sl. ár.

Stjórn Kenya Airways tilkynnti í síðustu viku að slæm afkoma félagsins megi rekja til þess að flugmennirnir séu reglulega að hringja sig inn veika án þess að hafa neina sönnun fyrir því sem hefur orðið til þess að félagið hafi oft þurft að fella niður flugferðir á sama tíma og þeir séu á háum launum.

Flugmannafélagið í Kenýa sagði í gær að Kenya Airways væri rekið með tapi þótt flugmenn myndi gefa vinnuna sína og fljúga í sjálfboðastarfi.

„Kenya Airways þarf að hætta að leita að blóraböggli meðal flugmanna. Ef þeir myndu fljúga frítt og ekki þiggja nein laun þá væri félagið samt sem áður rekið með tapi“, sagði Murimi Nyaga, ritari hjá Kenya Airlines Pilots Association.

Nyaga segir að Kenya Airways hafi sjálft komið sér í vanda með því að auka umsvif með því að bæta við tíðni án þess að hafa nógu marga flugmenn á sínum snærum og krefjast flugmannasamtökin að ríkisstjórn Kenýa grípi inn í og takist á við flugmannaskortinn.

Kenya Airways hefur tilkynnt að félagið ætli að skera niður leiðarkerfið vegna skorts á flugmönnum en félagið hefur 435 flugmenn en þarf á 497 flugmönnum að halda.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga