flugfréttir
CAE sér mikla aukningu í sölu á flughermum fyrir 737 MAX
- Flugfélög búa sig undir endurkomu MAX-vélanna með tilheyrandi þjálfun
Boeing 737 MAX flughermir fyrir 737-8
Mikil aukning hefur verið í sölu á Boeing 737 MAX flughermum á þessu ári þrátt fyrir að þoturnar hafa verið kyrrsettar um allan heim í tæpt hálft ár að verða.
Í afkomuskýrslu CAE, sem er stærsti framleiðandi flugherma fyrir Boeing 737 MAX, kemur
fram að pantanir hafa verið gerðar í 47 flugherma fyrir 737 MAX en þegar er búið að afhenda 11 á þessu ári ellefu til viðbótar verða afhentir fyrir árslok.
„Það er töluverð þjálfun framundan hjá flugfélögunum áður en þotan fer að fljúga aftur og við teljum
það vera ástæðuna fyrir þessari aukningu í eftirspurn eftir flughermum“, segir Marc Parent, framkvæmdarstjóri
CAE.
Aðeins voru örfá flugfélög sem höfðu Boeing 737 MAX flughermi árið 2017 er þotan kom
fyrst á markað þar sem þá var ekki
farið fram á að nauðsynlegt væri að þjálfa þá flugmenn á 737 MAX sem höfðu þegar tegundaráritun
á fyrri útgáfur af Boeing 737 líkt og 737-800.
Eftir kyrrsetninguna sem tók í gildi vestanhafs þann 12. mars sl. hefur verið rætt um að skylt verði að þjálfa alla flugmenn á Boeing 737 MAX í flughermi þótt þeir hafi flogið annarri tegund
af Boeing 737 áður.
Boeing 737 MAX flughermir
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa ekki ákveðið hvort svo verði en sumir sérfræðingar
telja að FAA mun ekki gera þjálfun á 737 MAX að skyldu í flughermi sem hluti að endurvottunarferlinu.
Flugmálayfirvöld í öðrum löndum geta farið fram á að allir flugmenn hljóti þjálfun í Boeing 737 MAX
flughermi en flugmálayfirvöld í hverju ríki fyrrir sig geta farið sínar leiðir svo lengi sem það er
í samræmi við samræmdar reglugerðir frá Alþjóðaflugmálastofnunninni (ICAO).
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.