flugfréttir

Röskun á flugi um San Francisco vegna framkvæmda á flugbraut

11. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 16:47

10R/28L brautin er þekkt sem ein af þeim brautum sem liggja samhliða hvor annarri á San Francisco flugvellinum

Yfir 1.100 flugferðum hefur verið seinkað eða aflýst um flugvöllinn í San Francisco frá því 7. september sl. eftir að einni af aðalflugbrautum vallarins var lokað vegna framkvæmda sem nauðsynlega þurfti að ráðast í tarfarlaust.

Um er að ræða 10R/28L sem er ein af fjórum flugbrautunum á SFO en í ljós kom að þreyta var komin í undirstöðulag undir yfirlagi brautarinnar og munu framkvæmdir standa yfir til 27. september.

Um 13% færri flugtök og lendingar munu eiga sér stað á þessu tímabili um flugvöllinn í San Francisco vegna þessa og hafa flugfélög þurft að aðlaga flugáætlun sinni í kjölfarið.

Yfirlag brautarinnar var malbikað fyrir 2 árum síðan en þá kom í ljós að millilagið var farið að bera merki um þreytu og sprungur voru komnar í þann hluta vegna mikils álags á brautinni en ekki var tími til þess að fara í framkvæmdirnar þá.

Braut 10R/28L hefur aðallega verið notuð fyrir lendingar á meðan 01L/19R hefur verið notuð fyrir brottfarir en brautarmótin, þar sem þessar tvær brautir mætast, eru undir miklu álagi þar sem 68% af öllum flugtökum og lendingum fara yfir þetta tiltekna svæði brautanna.

Þúsundir farþega hafa orðið fyrir seinkunum í vikunni vegna röskunar á flugi vegna framkvæmdana en stjórn flugvallarins í San Francisco segir að ekki var hægt að bíða mikið lengur með verkið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga