flugfréttir
FAA íhugar að fyrirskipa skoðun á hreyflum á A220
Airbus A220 þota AirBaltic
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) íhuga nú að fara fram á að ítarleg skoðun verði framkvæmd á hreyflum á Airbus A220 (CSeries) þotunum í kjölfar þriggja atvika sem hafa komið upp þar sem slökkva þurfti á hreyflum á meðan á flugi stóð.
Airbus A220 kemur með hreyflum frá Pratt & Whitney af gerðinni PW1500G
og PW1900G en mögulega þarf að skipta um íhluti í olíukerfi hreyflanna sem taldir
eru að hafi orsakað bilanirnar sem raktar hafa verið til olíuleka.
Til stendur að láta skoðun fara fram annarsvegar á olíukerfi og hinsvegar
eldsneytiskælikerfi á hreyflunum sem mögulega þarf að skipta um en Pratt & Whitney
hreyflaframleiðandinn greindi frá vandamálinu fyrr á þessu ári.
Fyrra atvikið átti sér stað í flugi hjá AirBaltic þann 5. ágúst í fyrra þegar upp kom
viðvörun um lágan olíuþrýsting skömmu eftir flugtak frá Riga og þurfti sú þota að snúa
við.
Seinna atvikið átti sér stað tveimur mánuðum síðar, þann 13. október árið 2018, er
þota frá SWISS International Air Lines var á leið frá Zurich til Parísar en í því
tilviki hélt þotan fluginu áfram til Parísar.
Þá átti þriðja atvikið sér stað í júlí í sumar einnig hjá SWISS á leið frá Genf til London en
sú flugvél lenti í París eftir að bilunin kom upp.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.