flugfréttir

Fara fram á að UTair verði gert gjaldþrota

- Fjórða stærsta flugfélag Rússlands skuldar 139 milljarða króna

30. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 08:19

Flugvélar UTair á Vnukovo-flugvellinum

Svo gæti farið að rússneska flugfélagið UTair verði næsta flugfélag til þess að leggja árar í bát en rússneski bankinn MTS ætlar að sækjast eftir því að UTair verði úrskurðað gjaldþrota vegna skulda.

Fram kemur að MTS bankinn ætli að ganga til liðs við aðra kröfuhafa sem eiga inni skuldir hjá UTair en bankinn segir að skuldirnar séu orðnar það miklar að ekki er séð fram á að flugfélagið rússneska eigi nokkurn tímann eftir að geta borgað þær.

Tvisvar á þessu ári hafa kröfuhafar reynt að láta gera UTair gjaldþrota. Í mars í vor voru fjögur fyrirtæki sem ráku mál sitt fyrir dómi en án árangurs og í júlí í sumar reyndi einn kröfuhafi að fara fram á að innheimta kröfur sínar til UTair með gjaldþrotabeiðni en því fyrirtæki tókst ekki að fara með málið fyrir dómstóla.

Með aðkomu fleiri kröfuhafa stendur til að nokkur fyrirtæki leggi hönd á plóg með einn stærsta banka Rússlands í fararbroddi til að freista þess að knésetja rekstur UTair til þess að fá eitthvað upp í kröfurnar.

Til stendur að málið verði tekið fyrir í vikunni en skuldir UTair nema 139 milljörðum króna og eru kröfuhafarnir að minnsta kosti 11 talsins.

UTair er 4. stærsta flugfélag Rússlands á eftir Aeroflot, S7 Airlines og Rossiya Airlines og hefur félagið 66 flugvélar í flota sínum sem flestar eru Boeing-þotur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga