flugfréttir

Flugstjóri hjá Aeroflot ákærður í kjölfar flugslyss

3. október 2019

|

Frétt skrifuð kl. 09:32

Flak Sukhoi Superjet 100 þotunnar á Sheremetyevo flugvellinum í maí

Saksóknarar í Rússlandi hafa gefið út kæru á hendur flugstjóra hjá Aeroflot í kjölfar flugslyss en hann flaug Sukhoi Superjet 100 þotu félagsins sem varð alelda eftir harkalega lendingu í Moskvu í maí í vor en 41 létu lífið í slysinu.

Þotan var á leið frá Sheremetyevo-flugvellinum til Murmansk en henni var snúið við eftir að eldingu laust niður í vélina skömmu eftir flugtak.

Þotan lenti hinsvegar það harkalega eftir að hafa skoppað á brautinni að hjólastellið brotnaði undan henni og kom upp mikill eldur eftir að eldsneyti flæddi út um allt.

Flugstjórinn tók við stjórn vélarinnar skömmu eftir þotan fékk eldingu í sig en rannsakendur hafa komist að því að hann hafi verið mjög harkalegur á stýrunum í aðfluginu og í lendingunni.

Í skýrslu frá rannsóknarnefnd flugslysa í Rússlandi segir að flugstjórinn hafi handflogið vélinni með þeim hætti að það stangist á við verkferla og það hafi orðið til þess að skrokkur vélarinnar og hjólabúnaður hafi ekki þolað lendinguna.

Fram kemur að flugstjórinn sé ákærður fyrir brot á öryggisreglum er varðar starfrækslu loftfara og hafi hann sýnt vítavert gáleysi með því hvernig hann handflaug vélinni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga