flugfréttir

Gjaldþrotið hefur áhrif á flota Thomas Cook Skandinavia

- Greiða úr flækjum er varðar leigusamninga eftir fall Thomas Cook

3. október 2019

|

Frétt skrifuð kl. 10:25

Thomas Cook varð gjaldþrota þann 23. september sl. en rekstur Thomas Cook Skandinavia heldur áfram þar sem það félag er sjálfstætt flugfélag

Gjaldþrot Thomas Cook hefur haft aðeins meiri áhrif á rekstur Thomas Cook Skandinavia en talið var í fyrstu en hið síðarnefnda félag er sjálfstætt flugfélag sem flogið hefur áfram undir merkjum Thomas Cook þar sem gjaldþrot Thomas Cook Group varðar ekki rekstur þess.

Hinsvegar hefur komið upp vandamál sem varðar leigu á þotum félagsins í kjölfar gjaldþrot Thomas Cook en ein Airbus A321 þota Thomas Cook Skandinavia hefur verið föst í Toulouse í Frakklandi í heila viku þangað sem henni var flogið eftir gjaldþrot Thomas Cook í Bretlandi.

Thomas Cook Skandinavia vinnur nú að því að fá hana aftur til höfuðstöðvana en talsmaður félagsins segir að það sé búið að vera krefjandi að lagfæra leigusamninga varðandi nokkrar þotur í kjölfar Thomas Cook í Bretlandi en það er flugvélaleigan GECAS sem á vélarnar.

Á meðan hefur flugfélagið gert leigusamning við flugfélagið SmartLynx um leigu á að minnsta kosti tveimur Airbus A321 þotum til tveggja vikna á meðan verið er að leysa úr leigumálum á hinum þotunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga