flugfréttir
Hong Kong Airlines býður flugmönnum að yfirgefa félagið
- Pólitísk spenna og mótmæli í Hong Kong hafa haft slæm áhrif á félagið
Flugvélar Hong Kong Airlines á Chek Lap Kok flugvellinum í Hong Kong
Vegna áframhaldandi óeirða í kjölfar mótmæla í Hong Kong og mikillar spennu milli stjórnvalda í Hong Kong og Kína hefur flugfélagið Hong Kong Airlines ákveðið að bjóða flugmönnum starfslokasamninga þar sem þeim er frjáls að yfirgefa flugfélagið vegna niðurskurðar.
Hong Kong Airlines hefur þegar skorið niður starfsemi sína frá því óeirðirnar hófust í Hong Kong og hætt meðal annars flugi til Cairns og Gold Coast
í Ástralíu auk þess sem félagið hefur fækkað ferðum til Vancouver.
Félagið segir að of margir flugmenn starfa hjá félaginu og mun félagið segja upp til að byrja með erlendum flugmönnum sem þurfa ekki að endurgreiða
til baka þau laun sem þeir hafa fengið fyrir launalaust leyfi að undanförnu auk þess sem þeir þurfa ekki að greiða til baka kostnað vegna tegundaráritunar.
Flestir erlendir flugmenn hjá Hong Kong Airlines koma frá Evrópu og Suðaustur-Asíu. Félagið ætlar einnig að hætta að fljúga til San Francisco
og fækkað ferðum til Los Angeles.
„Eftir að mótmælin hófust í Hong Kong í maí í vor þá hefur eftirspurnin eftir flugsætum hríðfallið“, kemur fram í tilkynningu. HNA Group, móðurfélag
Hong Kong Airlines, segir að einnig standi til að fækka í flotanum úr 39 flugvélum niður í 29 flugvélar á næstunni.
Leiðarkerfi Hong Kong Airlines telur 39 áfangastaði og þar af eru fimmtán á meginlandi Kína en félagið hóf starfsemi sína árið 2006.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.