flugfréttir
Tvö flugfélög draga saman pantanir í nýjar A320neo þotur
Við þetta minnkar pöntunarlistinn yfir A320neo þoturnar um níu þotur
Tvö flugfélög hafa nýlega skorið niður pantanir sínar í nýjar Airbus A320neo þotur um níu eintök til samans.
Czech Airlines pantaði sjö Airbus A320neo þotur í mars árið 2016 en félagið hefur afpantað
fjórar af þeim þotum og á félagið því aðeins von á þremur þotum en sú fyrsta verður afhent
árið 2021.
Þá hefur Norwegian hætt við fimm Airbus A320neo þotur sem voru hluti af risapöntun sem flugfélagið norska lagði inn til Airbus árið 2012 er félagið pantaði 100 þotur af þessari gerð.
Með þessu á Norwegian því von á 58 Airbus A320neo þotum í stað 63 þotna en pöntun félagsins
í 30 Airbus A321neo þotur helst óbreytt.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.