flugfréttir

Klifraði ofan á Embraer-þotu British Airways

- Var að mótmæla loftslagsbreytingum

10. október 2019

|

Frétt skrifuð kl. 17:47

Starfsfólk London City flugvallarins þurfti að hafa töluvert fyrir því að ná manninum ofan af flugvélinni

British Airways þurfti að hætta við áætlunarflug sitt í dag frá London City flugvellinum til Amsterdam eftir að maður klifraði ofan á eina af Embraer-þotum félagsins rétt fyrir brottför.

Fram kemur að maðurinn sé umhverfissinni sem hafi með þessu verið að mótmæla sinnuleysi stjórnvalda varðandi loftslagsbreytingar.

Slökkvilið auk starfsmanna á London City-flugvellinum náðu að fjarlægja manninn af vélinni með kranalyftu og var sett yfir hann appelsínugult vesti til að hýfa hann niður þar sem hann hafði lagst ofan á vélina rétt fyrir ofan innganginn að framan við stjórnklefann.

British Airways þurfti að aflýsa fluginu til Amsterdam vegna atviksins

Maðurinn sagði að það sé búið að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum og það sé ekkert gert í því en áður en það tókst að ná honum niður af flugvélinni fékk hann svima og sagði að hann væri frekar lofthræddur.

Maðurinn var með þessu að mótmæla sinnuleysi stjórnvalda í loftslagsmálum

Á Twitter-síðu breskra umhverfissinna er manninum hrósað fyrir gjörninginn og kemur fram að hann hafi með þessi viljað að flugiðnaðurinn gerði sér grein fyrir þeim útblæstri sem kemur frá flugvélum.

Þá var ein kona handtekin þar sem hún er talin hafa aðstoðað manninn við að komast ofan á flugvélina með því að hafa keypt fyrir hann flugmiða en maðurinn gekk meðal farþega upp stigann nema hvað hann ætlaði sér ekki inn í farþegarýmið.

Fleiri myndir:











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga