flugfréttir
Airbus hefur afhent 1.000 þotur úr A320neo fjölskyldunni
- Sú þúsundasta fer til IndiGo á Indlandi
Þúsundasta þotan úr Airbus A320neo fjölskyldunni fer til indverska flugfélagsins IndiGo
Airbus hefur náð þeim áfanga að hafa afhent 1.000 flugvélar úr Airbus A320neo fjölskyldunni en sú þúsundasta var afhent frá verksmiðjum Airbus í Hamborg á dögunum.
Þúsundasta þotan er af gerðinni A320neo sem fer í flota indverska flugfélagsins IndiGo
sem leigir vélina frá flugvélaleigunni CDB Aviation Lease Finance.
Aðeins eru fjögur ár síðan að Airbus afhenti fyrstu A320neo þotuna sem var afhent til Lufthansa
í janúar árið 2016 en þess má geta að það tók heilan áratug að afhenda 1.000 Airbus A320
þotur frá árinu 1988 til ársins 1999 en í dag hafa verið afhentar yfir 9.100 þotur af þeirri gerð.
Ekkert flugfélag hefur eins margar A320neo þotur í flota sínum eins og IndiGo sem hefur tekið
við yfir 96 þotum af gerðinni Airbus A320neo frá því árið 2016.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.