flugfréttir
Cabo Verde Airlines mun hefja flug til Nígeríu
- Fljúga til Lagos frá og með 9. desember
Boeing 757-200 þota í lotum Cabo Verde Airlines
Cabo Verde Airlines hefur tilkynnt að félagið mun hefja beint áætlunarflug frá Grænhöfðaeyjum til Lagos í Nígeríu.
Flogið verður með Boeing 757-200 þotum og verður fyrsta ferðin farin þann 9. desember næstkomandi og verður flogið fimm sinnum í viku.
„Það er mjög spennandi að bæta við í leiðarkerfið fjölmennasta ríki Afríku. Það er mjög
litríkur ferðamannaiðnaður í Nígeríu og okkur hlakkar til að þjóna viðskiptavinum okkar og tengja
þá við Grænhöfðaeyjar“, segir Jens Bjarnason, framkvæmdarstjóri Cabo Verde Airlines.
„Markmiðið okkar er að verða alþjóðlegt flugfélag sem tengir saman fólk frá fjórum
heimsálfum; Norður- og Suður-Ameríku, Evrópu og Afríku. Staðsetning Grænhöfðaeyja
er lykilatriðið í því“, segir Jens.
Loftleiðir Cabo Verde á 51% hlut í Cabo Verde Airlines á móti ríkisstjórn landsins sem
á 49 prósenta hlut en Loftleiðir Cabo Verde hafa unnið að því að setja upp nýja markaðsímynd
fyrir félagið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.