flugfréttir

Boða aðgerðir gegn gjaldþroti meðal flugfélaga

14. október 2019

|

Frétt skrifuð kl. 19:16

Frá Gatwick-flugvellinum í London

Ríkisstjórn Bretlands ætlar að fara að stað með aðgerðir er kemur að gjaldþrotum meðal flugfélaga og stendur til að kynna nýja löggjöf sem mun auðvelda gjaldþrotaferli og aðgerðir er snúa að því að koma farþegum til síns heima eftir að flugfélag hættir starfsemi.

Þá stendur einnig til að auka eftirlit með reglugerðum í flugi er varðar flugfélög sem eru í miklum rekstarvanda en tillögur varðandi þessi efni voru kynntar við setningu breska þingsins í morgun.

Mælt var með því að koma á fót löggjöf innan þingsins varðandi gjaldþrot flugfélaga eftir að Monarch Airlines hætti starfsemi sinni í október árið 2017 en sú tillaga hafði ekki verið sett í forgang fyrir gjaldþrot Thomas Cook.

Með nýju löggjöfinni er vonast til að hægt verði að lágmarka áhrifin næst þegar flugfélag verður gjaldþrota en fljótlega kom í ljós eftir gjaldþrot Thomas Cook að það gekk ekki eftir og þurfti að kalla til aðstoð frá öðrum flugfélögum til að koma farþegum heim.

Þá á að auka framlög til flugmálayfirvalda til að geta greitt fyrir farþega sem verða strandaglópar hvort sem þeir eru tryggðir fyrir því að komast með öðrum leiðum til síns heima eður ei samkvæmt reglugerð sem skráð var árið 1973.

Einnig er verið að skoða leiðir til að gera rekstrarumhverfið í fluginu hagstæðara með því að auka fjármagn til flugumferðarstjórnar með leiðum á borð við að einfalda flugumferðarsvæði sem gæti gert rekstur flugfélaga hagkvæmari.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga