flugfréttir
Flybe verður Virgin Connect
- Nafninu breytt til að færa ímyndina nær Virgin-merkinu
Eftir áramót mun Flybe heita Virgin Connect
Breska lágfargjaldafélagið Flybe mun breyta um nafn og koma til með að heita „Virgin Connect“ frá og með árinu 2020.
Með því mun félagið færast nær markaðsímynd Virgin Atlantic sem á þriðjungshlut
í félaginu í gegnum Connect Airways sem er móðurfélag Flybe.
Aðeins merki, ímynd og útlit flugflotans mun breyta um útlit að sögn félagsins en bókunarkerfið mun haldast óbreytt og segir að farþegar muni ekki finna fyrir neinum breytingum.
„Virgin Connect mun einblína með mikilli ástríðu á að verða eitt vinsælasta svæðisflugfélag
Evrópu“, segir Mark Anderson, framkvæmdarstjóri Flybe og Connect Airways.
Virgin Atlantic gerði eitt sinn tilraun til að hefja innanlandsflug í Bretlandi með flugfélagi
sem hét Little Red árið 2015 en það flugfélag hætti starfsemi sinni þremur árum síðar.
Markmið Virgin um að hasla sér völl í innanlandsfluginu í Bretlandi gæti orðið að veruleika með Virgin Connect en Flybe flýgur til 85 áfangastaða í bresku innanlandsflugi og í flugi til landa á borð við
Frakkland, Þýskaland, Lúxemborg, Holland, Portúgal, Spán og Sviss.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.