flugfréttir
Frakthurð á Boeing 737 opnaðist við harkalega lendingu
Boeing 737-800 þota Royal Air Maroc
Frakthurð var opin á Boeing 737-800 þotu frá flugfélaginu Royal Air Marco eftir lendingu á flugvellinum í Lagos í Nígeríu sl. föstudag.
Þotan var að lenda eftir flug frá Casablanca þegar starfsmenn flugvallarins urðu varir við
að hleri á einu fraktrýminu var opinn auk þess sem einhverjar ferðatöskur vantaði um borð.
sem vakti upp grunsemdir um að vélin hefði verið rænd.
Flugvélin snéri við og hélt til baka aftur til Casablanca eftir að hafa verið á jörðunni í eina klukkustund og fjörutíu mínútur.
Flugmálayfirvöld í Nígeríu tilkynntu að ekkert rán hefði átt sér stað og var niðurstaðan sú
að hurðin hefði sennilega opnast við harkalega lendingu.
Síðar kom í ljós að sá farangur sem var ekki í fraktinni hefði verið skilinn eftir í Casablanca fyrir brottför.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.