flugfréttir
Fyrsti almenni félagsfundur Flughermafélagsins um helgina
Cessna 172 Skyhawk (TF-FFL) í X-Plane flugherminum
Fyrsti formlegi félagsfundur Flughermafélags Íslands fer fram næstkomandi laugardag en félagið var stofnað þann 29. júní í sumar.
Flughermafélag Íslands eru fyrstu félagssamtök sinnar tegundar hér á landi sem sameinar
þá aðila sem fljúga í flughermum hvort sem um er að ræða með flug flughermaforritum í einkatölvu eða með flóknari uppsetningu á hermi sem lýkir eftir flugi.
Fyrsti almenni félagsfundurinn fer fram laugardaginn 26. október nk. í sal SENSA í Ármúla 31 og eru
þeir, sem hafa áhuga á flughermaflugi, hvattir til að mæta á fundinn.
Merki Flughermafélags Íslands
Í fréttatilkynningu frá Flughermafélagi Íslands kemur fram að nauðsynlegt er að skrá sig þar sem aðeins skráðir einstaklingar sem og þeir sem eru skráðir félagsmenn hafa aðgang að fundinum.
Nánari upplýsingar um fundinn má sjá á viðburðarsíðu Flughermafélagsins á facebook og þá má einnig sjá allar upplýsingar um samtökin á facebook-síðunni The Icelandic Flightsim Community.
Um 442 einstaklingar eru í dag meðlimir í hópnum The Icelandic Flightsim Community og fer þeim fjölgandi sem fljúga í flughermum og deila myndum og áhugamálinu á síðunni á facebook. Þá eru einnig margir sem fljúga reglulega hópflug saman á Netinu með forritum á borð við VATSIM.
Algengustu flughermarnir sem notaðir eru í dag eru X-Plane 11, Flight Simulator X og Prepar3D.
Nokkrar myndir sem meðlimir á The Icelandic Flightsim Cimmunity hafa deilt á fésbókinni:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.