flugfréttir

Fyrsta tilraunaflugið flogið með Diamond DA50

5. nóvember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:01

Diamond DA50 í tilraunarfluginu sem fram fór þann 28. október sl.

Austurríski flugvélaframleiðandinn Diamond Aircraft flaug á dögunum fyrsta tilraunaflugið með Diamond DA50 flugvélinni sem kemur með hreyfanlegu hjólastelli.

Framleiðandinn gerir ráð fyrir að vélin fái lofthæfisvottun frá evrópskum flugmálayfirvöldum (EASA) á næsta ári og að afhendingar geti hafist á þriðja ársfjórðungi næsta árs.

Soren Pedersen, tilraunaflugmaðurinn sem flaug vélinni, segir að flugvélin hafi sýnt „mikla lipurð“ í fyrsta fluginu og að öll tæki um borð hafi virkað eins og gert var ráð fyrir.

Diamond kynnti DA50 til leiks í apríl árið 2017 en upphaflega stóð til að vélin kæmi með föstu hjólastelli og díselmótor frá Safran/SMA en þróunin breyttist er kínverska fyrirtækið Wanfeng Aviation keypti Diamond Aircraft og kemur flugvélin með mótor frá Continental af gerðinni CD-300.

Diamond DA50 er fimm sæta flugvél sem gengur fyrir Jet A-1 þotueldsneyti en framleiðandinn mun síðar á þessu ári birta ítarlegar upplýsingar um afkastagetu og eiginleika vélarinnar.

Diamond Aircraft segir að DA50 hafi vakið mikla athygli en framleiðandinn mun ekki byrja að taka við pöntunum í vélina fyrr en á AERO flugsýningunni í Friedrichshafen í Þýskalandi sem hefst í apríl næsta vor.

Framleiðandinn segir að DA50 sé kjörin flugvél fyrir flugvélaeigendur þar sem hún tekur fimm manns (flugmann og fjóra farþega) og kemur með stóru farþegarými og getur tekið mikla hleðslu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga