flugfréttir
Afhendingar á Boeing 737 MAX gætu hafist á ný í desember
Boeing 737 MAX þotur í geymslu við verksmiðjur Boeing í ágúst
Boeing tilkynnti í gær að afhendingar á Boeing 737 MAX þotunum gætu hafist að nýju í desember þar sem að framleiðandinn hefur náð þeim áfanga að uppfylla fyrsta skilyrðið af þeim fimm sem bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) fara fram á svo hægt sé að gefa út vottun að nýju fyrir vélarnar.
FAA hefur ekki viljað gefa neitt í skyn varðandi hvenær 737 MAX geti farið að fljúga aftur
í fyrsta lagi en Boeing segir að það geti tekið allt að eitt ár þar til vélarnar eru komnar
með leyfi um allan heim til þess að fljúga aftur með farþega.
Evrópsk flugmálayfirvöld (EASA) hafa tilkynnt að það verði í fyrsta lagi í janúar
sem að mögulega verði hægt að aflétta kyrrsetningu Boeing 737 MAX í Evrópu en þá eiga flugfélög
eftir að koma fyrir þeim uppfærslum sem gerðar hafa verið á vélunum.
„Þeir verða að byrja að afhenda vélar frá sér sem fyrst svo að þeir geti fengið greitt fyrir vélarnar“, segir Richard Aboulafia, flugsérfræðingur hjá fyrirtækinu Teal Group í Virginíu en ef Boeing nær að hefja afhendingar á ný í desember þýðir það að flugfélög geta byrjað að fljúga vélunum fyrr þegar kyrrsetningunni verður aflétt.
Frá því í apríl í vor hefur Boeing framleitt 40 eintök af Boeing 737 MAX þotunum en framleiðandinn er nú að verða uppiskroppa með pláss til þess að geyma þær vélar sem smíðaðar hafa verið og eru þær nú þegar geymdar á nokkrum stöðum í Bandaríkjunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.