flugfréttir

Lækka verð á notaðri Boeing 757 þotu um helming

- Nepal Airlines reynir nú að selja seinni Boeing 757 þotuna

14. nóvember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 23:46

9N-ACB hefur lofthæfisvottorð í gildi fram í febrúar á næsta ári

Nepal Airlines hefur ákveðið að slá af verðinu um helming á seinni Boeing 757 þotunni sem félagið reynir nú að selja en tvisvar frá því í sumar hefur félagið reynt að selja vélina en án árangurs.

Upphaflega reyndi félagið að fá 7.8 milljónir bandaríkjadali fyrir þotuna ásamt hreyflum og varahlutum sem samsvarar 966 milljónum króna en núna hefur félagið lækkað lágmarksverðið niður í 4.2 milljónir dollara (520 milljónir króna).

„Stjórn félagsins ákvað að lækka verðið eftir að enginn sýndi vélinni áhuga sem uppfyllti skilyrði“, segir Ganesh Bahadur Chand“, talsmaður Nepal Airlines, sem tekur fram að nauðsynlegt sé að selja þotuna fyrir febrúar eftir áramót þar sem lofthæfisvottorð vélarinnar er enn í gildi en það rennur út eftir janúarmánuð.

Tvö tilboð bárust þó í hana en annað var ógilt þar sem sá kaupandi uppfyllti ekki nauðsynleg skilyrði á meðan seinna boðið var undir lágmarksverði.

Boeing 757 þotan, sem ber skráninguna 9N-ACB, hafði flogið fyrir Nepal Airlines í 31 ár en þotan var smíðuð árið 1988.

Fyrri Boeing 757 þotan seldist árið 2017 en 9N-ACB var sett á sölu í júní í sumar og hefur hún verið síðastliðina9 mánuði í geymslu á flugvellinum í Kathmandu.

Geymslugjöldin eru um 61.000 krónur á dag og eru gjöldin því samtals komin í samtals 14.8 milljónir króna frá því í sumar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga