flugfréttir
Bjartsýnir á að Boeing 737 MAX eigi eftir að ná sér á strik aftur
- Sjá fram á að sala á Boeing 737 MAX eigi eftir að glæðast á ný
Randy Tinseth, varaforstjóri yfir farþegaþotudeild Boeing á blaðamannafundi á Dubai Airshow flugsýningunni í gær
Randy Tinseth, varaforstjóri yfir farþegaþotudeild Boeing, segir að framleiðandinn sé bjartsýnn á að Boeing 737 MAX þotan eigi eftir að ná sér á strik þegar á líður og að pantanir eigi eftir að taka við sér einnig eftir að vélarnar fara að fljúga á ný.
Mjög fáar pantanir hafa borist í Boeing 737 MAX frá því að vélarnar voru kyrrsettar fyrir 8 mánuðum síðan í mars í vor
en þess má geta að International Airlines Group (IAG), móðurfélag British Airways, gerði samkomulag um pöntun
á 200 Boeing 737 MAX þotum á flugsýningunni í París í sumar.
Töluverður munur er á fjölda pantanna í Boeing 737 MAX og Airbus A320neo en flugvélaframleiðandinn evrópski er komin með pantanir í 7.022 eintök
af þotum úr A320neo-fjölskyldunni á meðan flugfélög hafa pantað 4.930 eintök af Boeing 737 MAX.
„Það sem er algjörlega númer eitt í forgangi hjá okkur núna er að koma vélinni aftur í loftið með öruggum hætti. Um leið
og það er búið og afhendingar hefjast að nýju þá höfum við fulla trú á því að staða okkar, og velgengni Boeing 737 MAX þotunnar, muni koma að sjálfu sér miðað við þá yfirburði sem hún hefur á markaðnum“, segir Tinseth.
Boeing stefnir á að 737 MAX verði komin með vottun frá flugmálayfirvöldum fyrir áramót og að vélarnar
geti farið að fljúga á ný innan tveggja til þriggja mánaða.
„Við erum að vinna í nánu sambandi við flugmálayfirvöld og einnig að því að setja upp þjálfunarverkefni fyrir
áhafnir svo við náum að halda okkur við tímarammann í janúar. Þetta fer samt sem áður allt eftir þróun mála
hjá flugmálayfirvöldum“, bætir Tinseth við.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.