flugfréttir

Fyrirmæli frá FAA ná til yfir 4.000 Bonanza-flugvéla

18. nóvember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 10:26

Flugvél af gerðinni Beech Bonanza E33A

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa gefið út fyrirmæli um skoðun á 36 mismunandi tegundum af Bonanza-flugvélum sem nær því til alls 4.100 flugvéla í Bandaríkjunum af Bonanza-gerð.

Tilmælin varðar víra sem tengjast hægra hallastýrinu á vélunum og er vitað um 17 tilvik sem upp hafa komið sem má rekja til galla í vírum sem tengjast festingum í stýrisfletinum.

Atvikin sautján komu upp á vélum af gerðinni Bonanza E33A, S35, V35 og A36 en flugmályfirvöld krefjast þess að skoðun fari einnig fram á vélum af gerðinni E33, E33C, F33, F33A, F33C, G33, 35-C33, 35-C33A, K35, M35, N35, P35, V35A og V35B.

Vegna tíðra atvika hafa flugrekendur og eigendur viðkomandi flugvéla frest í aðeins 30 daga til þess að framkvæma skoðun á eftirfarandi flugvélum frá og með 22. nóvember og gildir fresturinn því til 22. desember.

Skoðunin sjálf tekur um 5 klukkustundir að framkvæma og er kostnaðurinn í kringum 425 bandaríkjadali sem samsvarar um 52.000 krónum en ef nauðsynlegt er að skipta um varahluti og vírinn í hallastýrinu þá getur kostnaðurinn farið í yfir 320 þúsund krónur.

AOPA, samtök einkaflugmanna og flugvélaeigenda í Bandaríkjunum, segja að samtökin „American Bonanza Society“ styðji fyrirmælin en taka fram að flugvélar af tegundinni K35, M35, N35 og P35 ættu ekki að vera á listanum þar sem uppsetning á hallastýrinu á þeim vélum er af annarri gerð.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga