flugfréttir

Nýr framkvæmdarstjóri mun taka við stjórn Norwegian

- Jacob Schram mun taka við stjórn lágfargjaldafélagsins norska

20. nóvember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:55

Jacob Schram mun taka við stöðu framkvæmdarstjóra hjá Norwegian eftir áramót

Nýr framkvæmdarstjóri hefur verið skipaður í stjórn Norwegian sem mun taka við stöðu Björn Kjos sem steig til hliðar í júlí í sumar.

Nýi framkvæmdarstjórinn heitir Jacob Schram hefur hann meðal annars verið forstjóri hjá benstínstöðvarkeðjunni Circle K í Evrópu auk þess sem hann var í stjórn hjá fyrirtækinu Statoil Fuel & Retail.

Schram mun taka við framkvæmdarstjórastöðunni hjá Norwegian í byrjun næsta árs en Geir Karlsen hefur sinnt stöðunni frá því að Kjos hætti í sumar.

Fram kemur að Schram hafi víðtæka reynslu á sviði stjórnun fyrirtækja auk þess sem hann hefur mikla leiðtogahæfileika og er talið að kunnátta hans eigi eftir að nýtast Norwegian mjög vel.

„Flugiðnaðurinn er sagður vera mjög krefjandi þar sem samkeppnin er mikil og ófyrirsjáanlegar aðstæður geta komið upp á hvenær sem er. En þetta er líka iðnaður sem er mjög mikilvægur fyrir fólk“, segir Schram sem segir að hann mun einblína á að koma rekstri Norwegian aftur yfir í hagnað.

Umsvif Norwegian hafa aukist verulega að undanförnu en sl. ár hafa verið mjög erfið og hefur félagið meðal annars selt flugvélar og hætt flugi til þeirra áfangastaða sem eru ekki lengur arðbærir.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga