flugfréttir
Piaggio Aerospace fær leyfi til að selja fyrirtækið
- Hafa enn ekki fundið kaupanda en komnir með grænt ljós frá ítalska ríkinu
Avanti Evo hafa lengi þótt mjög sérstakar flugvélar og fallegar
Ítalski flugvélaframleiðandinn Piaggio Aerospace hefur fengið grænt ljós frá ríkisstjórn Ítalíu fyrir sölu á fyrirtækinu en framleiðandinn leitar enn að kaupanda til að taka yfir reksturinn.
„Við getum núna byrjað formlega að auglýsa eftir tilboðum frá aðilum og fyrirtækjum á alþjóðamarkaði og þá getum
við einnig byrjað að setja eignir fyrirtækisins á sölu“, segir Vincenzo Nicastro, skipaður skiptastjóri stjórnar Piaggio
Aerospace.
Stefnan er að finna nýja eigendur sem gætu tekið við rekstri framleiðandans að öllu leyti og er vonast til
þess að söluferlinu verði lokið fyrir næsta haust.
Rekstur Piaggio Aerospace hefur gengið brösulega sl. ár en fyrirtækið sótti um gjaldþrotameðferð í desember
í fyrra. Framleiðandinn er hvað þekktast fyrir hina sérstöku Avanti Evo flugvél en mjög fáar pantanir hafa borist í þá flugvél og voru aðeins þrjú eintök pöntuð árið 2018.
Piaggio Aerospace fékk örfáar pantanir í nýjar Avanti Evo flugvélar á NBAA-BACE 2019 einkaþotusýningunni
sem fram fór í október í haust í Las Vegas en þær pantanir komu aðallega frá ríkisstjórn Ítalíu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.