flugfréttir
FAA sviptir Boeing leyfi til að sjá um vottun á 737 MAX
- FAA mun framkvæma úttekt á hverri einustu 737 MAX þotu fyrir afhendingu
Nýjar Boeing 737 MAX þotur við verksmiðjur Boeing í Renton
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa sent tilkynningu til Boeing þar sem stofnunin lætur flugvélaframleiðandann vita að héðan í frá mun FAA sjá alfarrið um allar vottanir sem gefnar verða út fyrir nýjar Boeing 737 MAX og verður það ekki lengur að hluta til í höndum Boeing.
Í kjölfar flugslysanna tveggja kom í ljós að FAA hafði falið Boeing að hluta til að sjá um að hafa eftirlit með öryggisferli
og vottun á sinni eigin framleiðslu varðandi Boeing 737 MAX og vakti það mikla furðu að flugmálayfirvöld settu vottunarferlið í hendurnar á framleiðandanum sjálfum.
Þá hefur FAA tilkynnt að það sé ekki búið að fara yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið á MCAS-kerfinu og hugbúnaði
því tengdu auk viðeigandi þjálfunar.
„Það hefur verið ákveðið að það sé fyrir bestu bæði vegna almannahagsmuna og í ljósi flugöryggis að bandarísk
flugmálayfirvöld taki aftur við hlutverki sínu sem eftirlitsaðili og hafi fulla stjórn sem eini aðilinn er kemur að útgáfu á endurvottun vegna flughæfis fyrir Boeing 737 MAX“, segir m.a. í bréfi sem FAA sendi Boeing í gær.
Í nýlegri heimildarmynd sem gerð var um Boeing 737 MAX er greint frá því að raunin hafi verið sú að umfang vinnunnar sem fór í að votta Boeing 737 MAX var orðin það umfangsmikil á sínum tíma auk tímapressu að koma vélinni á markað að FAA hafði ekki nægan mannafla með kunnáttu til þess að hafa eftirlit með öllu ferlinu og var Boeing því falið að framkvæma þá vinnu að mestu leyti.
Boeing vonast til þess að FAA muni gefa út flughæfisvottun að nýju fyrir Boeing 737 MAX um miðjan desember
sem gætti þýtt að vélarnar gætu farið að fljúga á ný í janúar eftir áramót vestanhafs.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.