flugfréttir
Brandenburg-flugvöllurinn í Berlín opnar 31. október 2020
- Opnar 9 árum á eftir áætlun
Hjólreiðamaður virðir fyrir sér flugstöðvarbygginguna á heimsins stærsta draugaflugvelli
Ný dagsetning hefur verið tilkynnt varðandi langþráða opnun Brandenburg-flugvallarins í Berlín og stendur til að flugvölluinn opni loksins 31. október á næsta ári.
Engelbert Lutke Daldrup, framkvæmdarstjóri Brandenburg-flugvallarins, tilkynnti þetta sl. föstudag og ef allt
gengur upp mun flugvöllurinn því opna loksins 9 árum á eftir áætlun.
Fram kemur að tvær flugstöðvar munu opna 31. október, T1 og T2 og þann dag mun fyrsti hluti flutninga hefjast frá Schönefeld og Tegel-flugvöllunum yfir á Brandenburg-flugvöllinn og nafn flugstöðvarinnar á Schönefeld mun breytast í BER T5.
Gróður er farinn að vaxa á gangséttinni við flugstöðina
4. nóvember verður syðri flugbraut vallarins tekin í notkun og annar hluti flutninga hefst þann dag en þann 7. nóvember hefst þriðja og síðasta hollið í flutningum auk þess sem Tegel-flugvellinum verður lokað þann daginn.
Brandenburg-flugvölluinn verður heimastöð Eurowings, easyJet og Ryanair en alls eru 74 flugfélög sem í dag
fljúga til Schönefeld og Tegel-flugvallanna og munu þau öll færa sig yfir á nýja Brandenburg-flugvöllinn á næsta ári.
Brandenburg-flugvöllurinn átti upphaflega að opna árið 2011 en sex sinnum var opnun hans frestað vegna fjölda vandamála sem má rekja til galla í reykræstikerfi, sprinkler-vatnsúðunarkerfi, brunahljóðkerfi auk
þess sem sjálfvirkar hurðir á flugvellinum hafa ekki virkað sem skildi.
Kostnaður við Brandenburg hefur aukist um 4,1 milljarða evra sem samsvarar 575 milljörðum króna og er talið að heildarkostnaður við framkvæmdirnar sé að nálgast 930 milljarða og gæti hann hæglega farið í 1.000 milljarða þegar upp er staðið.
Flugstöðvarbyggingin á Brandenburg-flugvelli
Þess má geta að það kostar rekstraraðila flugvallarins 79 milljónir króna hver dagur sem Brandenburg-flugvöllur er ekki í notkun sem samsvarar 2 milljörðum á mánuði.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.