flugfréttir
Alitalia fær 50 milljarða króna lán frá ítalska ríkinu
- Dugar fyrir rekstri fram til maí 2020 á meðan verið er að finna fjárfesta
Alitalia hefur verið rekið undir gjaldþrotavernd frá árinu 2017
Ríkisstjórn Ítalíu hefur ákveðið að veita ríkisflugfélaginu Alitalia lán upp á 53 milljarða króna til þess að tryggja áframhaldandi rekstur félagsins en á sama tíma er verið að leita að nýjum fjárfestum til þess að taka yfir rekstur þess.
Rómverska þingið samþykkti lánið til Alitalia sl. mánudag en það bíður hinsvegar samþykkis frá Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins. Flugfélagið ítalska hefur tæknilega verið gjaldþrota frá árinu 2017 eftir að sótt var um gjaldþrotameðferð.
Lánsupphæðin mun bæði tryggja daglegan rekstur og einnig fjármagna aðgerðir til einkavæðingar og þá verður féið
einnig notað til þess að styrkja innviði þess.
Ekki hefur tekist að einkavæða flugfélagið þar sem utanaðkomandi fjárfestir hefur ekki fundist til að taka við keflinu
sem varð til þess að ríkisstjórn landsins ákvað að grípa inn í með láni.
Fram kemur að lánið eigi að tryggja rekstur félagsins fram til 31. maí á næsta ári á meðan verið er að leita að nýjum
eiganda en verkalýðsfélög hafa sett þrýsting á stjórnvöld til þess að koma með langtímalausn við vanda Alitalia
ef ekki tekst að finna fjárfesta.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.