flugfréttir

Flugmenn hjá IndiGo varaðir við að nota fullt afl í flugtaki

5. desember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:35

Airbus A320neo þota frá indverska flugfélaginu IndiGo

Indverska flugfélagið IndiGo hefur gefið út viðvörun til flugmanna sinna þar sem þeir eru varaðir við því að setja hámarks afl á hreyflana á nýju Airbus A320neo þotum félagsins í flugtaki og í klifri.

Viðvörunin er send út í kjölfar 13 atvika sem hafa komið upp á þessu ári sem hefur orsakað bilanir í lágþrýstihluta túrbínunar í PW1100G hreyflunum sem framleiddir eru af Pratt & Whitney.

Talsmaður IndiGo segir að flugmenn muni héðan í frá nota aðeins lægri aflstillingu fyrir flugtak og flugtaksklifur í samræmi við upplýsingar frá Airbus og Pratt & Whitney en komið hefur í ljós að IndiGo er eina flugfélagið sem hefur orðið fyrir barðinu á þessu vandamáli.

Airbus segir að flugfélög, sem hafa A320neo í flota sínum, geti notað fullt afl á hreyflunum en mælir með að afl sé notað í samræmi við útreiknaða afkastagetu með tilliti til þyngdar, hitastigs auk annarra þátta.

IndiGo hefur skipað flugmönnum félagsins að nota ekki meira en 93% af hámarksafli og fara ekki yfir þau mörk fyrr en flugvélarnar eru komnar yfir 25.000 feta hæð.

Með því mun það taka flugvélarnar 2 til 3 mínútur lengur að klifra upp í farflugshæð en samt mun það hafa tiltölulega lítil áhrif á eldsneytisnotkun.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga