flugfréttir

Qantas flýgur síðasta júmbó-þotuflugið til Bandaríkjanna

6. desember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:46

Qantas hefur sex Boeing 747-400 þotur eftir í flotanum í dag

Qantas flaug sl. miðvikudag síðasta júmbó-þotuflugið sitt til Bandaríkjanna sem var áætlunarflug frá San Francisco til Sydney en héðan í frá verður það flug flogið með Dreamliner-þotum.

Qantas byrjaði að fljúga Boeing 747 árið 1971 og hafa alls 65 júmbó-þotur verið í flota félagsins í þau 48 ár sem félagið hefur haft þær í notkun en í dag hefur félagið aðeins sex júmbó-þotur af gerðinni 747-400.

„Júmbó-þotan hefur verið aðalvinnuhesturinn hjá Qantas í yfir 40 ár og við höfum flogið næstum því öllum tegundum af Boeing 747 sem smíðaðar hafa verið“, sagði Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas, en félagið mun hætta að nota júmbó-þotuna á næsta ári.

Qantas tilkynnti um endalok júmbó-þotunnar í maí árið 2018 á sama tíma og félagið tilkynnti nýja pöntun í Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-9 og hefur félagið fengið tíu slíkar afhentar og á eftir að fá fjórar til viðbótar.

Þess má geta að Qantas flaug fyrsta flugið sitt milli Sydney og San Francisco fyrir 60 árum síðan, í júlí árið 1959, og var það flug flogið með Boeing 707.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga