flugfréttir

Boeing mælir með þjálfun í hermi fyrir endurkomu 737 MAX

- Fóru áður fram á þjálfun með tölvutæki efni á spjaldtölvu

8. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:44

Boeing 737 MAX flughermir

Boeing hefur skipt um skoðun varðandi kröfur sem farið er fram á áður en flugmenn byrja að fljúga aftur Boeing 737 MAX þotunum þegar kyrrsetningu vélanna verður aflétt.

Áður hafði flugvélaframleiðandinn bandaríski greint frá því að nóg væri að þeir flugmenn, sem fljúga Boeing 737 MAX, myndu gangast undir þjálfun með þjálfunarefni á tölvutæku formi á spjaldtölvum til þess að kynna sér þær breytingar sem gerðar hafa verið vegna uppfærslna á MCAS-kerfinu.

Núna hefur Boeing mælt með því að flugmenn fari í þjálfun í flughermi áður en þeir snúa til baka í stjórnklefann en bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) eru að fara yfir kröfur Boeing og verður í kjölfarið ákveðið hvort að skylda verði að flugmenn gangist undir þjálfun í flughermi.

Boeing 737 MAX þoturnar hafa verið kyrrsettar í 10 mánuði

Ef það verður krafa að allir flugmenn gangist undir þjálfun í flughermi gæti það tekið marga mánuði þar sem þjálfa þarf þúsundir flugmanna á tiltölulega skömmu tímabili á sama tíma sem aðeins 34 flughermar eru tiltækir í heiminum fyrir þann fjölda.

Átta þessara flugherma eru í eigu Boeing á meðan 26 flugherma er að finna í eigu þeirra flugfélag sem hafa Boeing 737 MAX í flota sínum. Southwest Airlines hefur til að mynda þrjá flugherma sem verið er að uppfæra með nýju uppfærslunni á MCAS-kerfinu en það flugfélag hefur 9.100 flugmenn sem fljúga Boeing 737 þotum.

Talið er að FAA muni taka meðmæli Boeing til skoðunar á sama tíma og aðalfundur á vegum Joint Operations Evaluation Board fer fram sem er sérstök nefnd sem stofnuð var í tengslum við flugslysin tvö með Boeing 737 MAX vélarnar.

FAA segist ætla að sjá til þess að því verður fylgt eftir að allar breytingar og uppfærslur verði gerð skil í þjálfun Boeing 737 MAX flugmanna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga