flugfréttir
Diamond DA42 kennsluflugvél brotlenti í Kína
- Tveir flugnemar og flugkennari létust í slysinu
Diamond DA42 Twin Star kennsluflugvél frá HNA Group
Þrír létu lífið í flugslysi í Kína fyrr í vikunni er lítil tveggja hreyfla kennsluflugvél brotlenti í kennsluflugi.
Slysið átti sér stað sl. mánudag í Hubei-héraðinu og var um að ræða kennsluflugvél af gerðinni Diamond DA42 Twin Star
frá flugskólanum Yichang Aviation Academy.
Um borð í flugvélinni voru tveir flugnemar og einn flugkennari og kemur fram að vélin hafi verið í flugkennslu þegar
hún brotlenti í trjálendi í fjallshlíð í slæmu skyggni.
Flugvélin var á leiðinni til baka til flugskólans þar sem ákveðið var að snúa við vegna veðurs en samband rofnaði
við vélina skömmu síðar.
Yichang Aviation Academy er í eigu samsteypunnar HNA Group sem á meðal annars og rekur flugfélög á borð við
Hainan Airlines auk þess sem það á hlut í Hong Kong Airlines, Azul Brazilian Airlines, Comair, TAP Air Portugal
og Virgin Australia.
Gríðarleg eftirspurn er eftir flugmönnum í Kína sem hefur tiltölulega fáa flugskóla miðað við umsvif flugfélaganna og
hefur aðsókn í flugnám í landinu aukist töluvert.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.