flugfréttir

Þveraði braut í veg fyrir þotu í flugtaki á JFK í New York

- Mögulega skapaði talan 22 rugling hjá flugmönnunum

16. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 10:44

Farþegaþotur frá Delta Air Lines á Kennedy-flugvellinum í New York

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) rannsaka nú brautarátroðning sem átti sér stað nýverið á John F. Kennedy flugvellinum í New York milli tveggja farþegaþotna frá Delta Air Lines, báðar af gerðinni Boeing 757.

Atvikið átti sér stað með þeim hætti að önnur þotan hafði fengið flugtaksheimild og var komin vel áleiðis í flugtaksbruninu þegar hin Boeing 757 þotan, sem var nýlent eftir flug frá St. Maarten í Karíbahafinu, þveraði brautina í veg fyrir hana en þeirri vél hafði verið gert að bíða við brautarmótin.

Flugumferðarstjóri kom auga á í hvað stefndi og bað han flugmennina um að hætta strax við flugtakið en sú þota var á leið til Bogóta í Kólombíu.

Um 1,6 kílómeter skildi vélarnar að á brautinni eftir að þotan sem var í flugtakinu náði að stöðva sig af eftir á miklum hraða. Flugstjórinn á þotunni sem var að koma frá St. Maarten hefur axlað ábyrgð á atvikinu og var farið yfir hljópupptökur af samskiptum milli flugturns og flugmannanna.

Boeing 757 þota frá Delta Air Lines

Talið er að ruglingur hafi skapast þar sem flugumferðarstjóri bað flugmennina að bíða við braut 22R en þeim hafði skömmu áður verið gert að leggja að hliði númer 22 en báðar upplýsingarnar innihalda töluna 22.

„Afsakaðu þetta. Við misstum af þessu. Þetta er mér að kenna. Ég heyrði það sem þú sagðir en las til baka allt annað“, sagði flugstjórinn við flugumferðarstjórann eftir að hafa þverað brautina.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga