flugfréttir
Boeing 737 MAX þotu flogið til Ísrael í gær
- Flogið í 19.000 feta hæð í 5 tíma og með flapa niðri
Flugtíminn frá Varsjá til Tel Aviv í gær var rúmar 5 klukkustundir
Það þykir tíðindum sæta ef Boeing 737 MAX þota hefur sig til flugs þessa dagana en ein slík flaug gegnum evrópska lofthelgi í gær á sama tíma og almennt flugmann gildir fyrir vélarnar.
Pólska flugfélagið Enter Air flaug einni Boeing 737 MAX 8 þotu í gær sérstakt ferjuflug frá Varsjá til Tel Aviv
en þotan mun gangast undir viðhald í Ísrael á næstu dögum.
Líkt og þegar Icelandair flaug nýju Boeing 737 MAX þotunum af landi brott fyrir veturinn sl. haust þá þurftu flugmenn
hjá Enter Air einnig að fljúga vélinni með flapa niðri sem þýddi að þotan flaug í lægri flughæð og brenndi meira eldsneyti
á leiðinni suður til botns Miðjarðarhafsins.
SP-EXB í aðflugi að Ben Gurion flugvellinum í Tel Aviv í gær
Þotan, sem ber skráninguna SP-EXB var ekki flogið hærra en í 19.000 fetum og lá flugleiðin frá Varsjá suður yfir
Slóvakíu, Ungverjaland, Rúmeníu, Búlgaríu, Grikkland og meðfram vesturströnd Tyrklands og lækkaði þotan svo flugið suður af Kýpur.
Enter Air hefur fengið tvær Boeing 737 MAX þotur afhentar en að öðru leyti hefur félagið 21 þotu af gerðinni
Boeing 737-800 í flotanum.
Í byrjun þessarar viku voru liðnir 10 mánuðir frá því að flugmálayfirvöld víðsvegar um heiminn kyrrsettu Boeing 737 MAX þoturnar en enn er ekki vitað hvenær þær fá grænt ljós til þess að fljúga á ný.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.