flugfréttir
Helmingur af öllum breiðþotum South African til sölu
- Óska eftir tilboði í fimm A340-300 og fjórar A340-600 breiðþotur
Breiðþotufloti South African Airways á O.R. Tambo flugvellinum í Jóhannesarborg í Suður-Afríku
South African Airways hefur sett á sölu meira en helmingin af öllum langflugsflota félagsins í þeim tilgangi að auka lausafé félagsins og koma rekstrinum frá gjaldþroti.
Um er að ræða alls níu Airbus A340 breiðþotur, fimm af gerðinni A340-300 og fjórar af gerðinni A340-600 en flugfélagið suðurafríska hefur 16 Airbus A340 breiðþotur í flotanum.
Airbus A340-300 þoturnar eru frá 15 til 22 ára gamlar á meðan meðalaldur A340-600 breiðþotnanna eru um 16.5 ár.
Eftir söluna mun félagið standa uppi með þrjár Airbus A340-300 þotur og fimm A340-600 þotur.
Þá hefur félagið auglýst til sölu fimmtán þotuhreyfla af gerðinni CFM56 og Trent 500 frá Rolls-Royce auk
varaaflstöðvakerfis (APU).
Félagið hefur einnig ráðið ráðgjafarfyrirtækið Matuson Associates til þess að sjá um að gera viðsnúningsáætlun
en fyrri viðsnúningsáætlanir hafa ekki gengið eftir eins og til stóð.
ZS-SND er ein af þeim breiðþotum sem félagið hefur sett á sölu
Áhugasamir aðilar hafa frest til 30. janúar næstkomandi til þess að senda inn tilboð og mun tilboðið gilda í 180
daga eftir það.
South African Airways sótti um gjaldþrotameðferð í desember 2019 og stóð til að ríkisstjórn Suður-Afríku og
einkareknir fjárfestar myndu setja 17 milljarða króna inn í rekstur félagsins en ríkisstjórnin hefur ekki enn
greitt sinn hlut af þeirri fjárveitingu.
Fram kemur að ef félagið fær ekki aukafjármagn inn í reksturinn fyrir 19. janúar gæti svo farið að félagið neyðist til
þess að fella niður flugferðir og mögulega verður ekki hægt að greiða starfsfólki laun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.