flugfréttir
Ríkisstjórn Rúmeníu ætlar að bjarga rekstri Tarom fyrir horn
- Félagið myndi ekki ná að þrauka lengra en framí mars án fjármagns
Boeing 737 þota flugfélagsins Tarom á Henri Coandă flugvellinum í Búkarest
Ríkisstjórnin í Rúmeníu fundar nú um alvarlega stöðu hjá ríkisflugfélaginu Tarom og hafa staðið yfir viðræður um mögulegar leiðir til þess að bjarga rekstri félagsins.
Lucian Bode, samgönguráðherra landsins, hefur beðið Ludovic Orban, forsætisráðherra, um að gera drög að
fjárveitingu til flugfélagsins fyrir árið 2020 til þess að bjarga rekstri félagsins og mun Tarom að öllum líkindum fá
fjárhagsaðstoð upp á 5,5 milljarða króna.
Fram kemur að án fjárveitingar þá myndi Tarom ekki ná að halda rekstrinum áfram lengur en fram í mars í vor.
Bode samgönguráðherra hafði áður varað við stöðunni hjá Tarom sem er 65 ára gamalt flugfélag, stofnað árið 1954.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.