flugfréttir
Nýtt vandamál uppgötvast með Boeing 737 MAX
- Galli í hugbúnaði kom í ljós í vottunarferlinu er talinn vera minniháttar
Sérfræðingar segja að vandamálið sé minniháttar
Nýtt vandamál í hugbúnaði um borð í Boeing 737 MAX þotunum hefur uppgötvast en vandamálið kom í ljós í vottunarferlinu sem staðið hefur yfir sl. mánuði.
Um er að ræða hugbúnað sem er ætlað að hafa yfirsýn með afkastagetu á hreyflum þegar þeir eru ræstir og
er mögulegt að þetta vandamál gæti valdið enn frekari töfum á því að Boeing 737 MAX vélarnar geti flogið á ný.
Samkvæmt flugsérfræðingi þá er þetta vandamál þó minniháttar og tengist ekki MCAS-kerfinu sem aðalvandamálið
hefur snúist um hingað til og segir Boeing að verið sé að laga þetta nýja vandamál.
Framleiðandinn segir að þeim sé kunnugt um vandamálið og sé verið að lagfæra það í samvinnu við bandarísk
flugmálayfirvöld (FAA) og verður tilkynnt nánar um stöðu málsins þegar nær dregur.
Hugbúnaðurinn sér um að hafa eftirlit með mismunandi kerfum þegar hreyflarnir eru ræstir og sjá um að samræmi
sé á milli ferlisins þegar rafmagni er sett á kerfin hvort sem um er að ræða rafmagn frá vélinni sjálfri (APU) eða frá
aflsstöð á jörðu niðri.
John Goglia, sérfræðingur hjá samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB), segir að ef kerfið myndi bila þá myndu
flugmennirnir samt sem áður fá viðvörun í stjórnklefanum varðandi tilheyrandi kerfi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.