flugfréttir

Air Greenland pantar A330neo

- Verður afhent til Grænlands árið 2021

18. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 10:26

Tölvugerð mynd af Airbus A330-800 í litum Air Greenland

Grænlenska flugfélagið Air Greenland hefur gert samkomulag við Airbus um kaup á einni Airbus A330-800 breiðþotu sem er minni gerðin af A330neo þotunni.

Tilkynnt var um pöntunina formlega á blaðamannafundi sem fram fór í gær í Nuuk á Grænlandi en nýja þotan mun leysa núverandi Airbus A330-200 af hólmi þegar hún verður afhent árið 2021.

Þotan mun koma með sætum fyrir 305 farþegar og tekur því fleiri farþega en núverandi breiðþota og verður hún einnig notuð að mestu leyti í áætlunarflugi milli Grænlands og Kaupmannahafnar. Airbus A330-800 þotan kemur með nýstárlegum innréttingum og farþegarými og mun bjóða upp á mikil þægindi fyrir farþega.

Frá blaðamannafundinum sem fram fór í Nuuk í gær þar sem tilkynnt var um pöntunina á nýju Airbus A330-800 þotunni

Air Greenland ákvað að velja A330-800 þar sem hún er bæði mjög hagkvæm og sparneytin og einnig þar sem félagið hefur í dag verið með Airbus A330 breiðþotuna í einn og hálfan áratug en það mun spara félaginu umtalsverðan kostnað í þjálfun flugmanna samanborið ef önnur tegund af þotu hefði verið pöntuð.

Fram kemur að Air Greenland ætlar sér að selja núverandi Airbus A330 breiðþotu sem kallast „Norsaq“ eftir að sú nýja verður afhent.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga